
Nýttu þér námskeðin
og bættu öryggið
Orkustjórnun -Læsa, merkja og prófa
Bóklegt nám fyrir brúkrana (réttindi)
Áhættumat

Orkustjórnun eða læsa merkja og prófa er verkferli sem notað er til þess að tryggja öryggi þegar unnið er með háskalega orku. Þegar unnið er með háskalega orku þá er yfirleitt mikil orka í kringum búnað sem er í notkun og manneskjan því lítil fyrirstaða ef eitthvað fer úrskeiðis. Mismunandi aðstæður í kringum háskalega orku geta skapast og því mikilvægt að öllum verkferlum sé fylgt eftir til að tryggja sem best öryggi.
Markmið með námskeiðinu er m.a. að nemandi
-
Viti hvað orkustjórnun er, þekki vel ferlið í kringum orkustjórnun og þau mismunandi hlutverk sem starfsmenn gegna í orkustjórnunarferlinu
-
Þekki mismunandi tegundir af læsingum og mismunandi tegundir af lásum
-
Viti hvað bilanagreiningar eru og hvernig þær eru framkvæmdar

Bóklegt nám fyrir brúkrana sem er viðurkennt af Vinnueftirlitinu.
Það er krafa að hafa réttindi til þess að mega nota brúkrana og hlaupaketti sem geta lyft meira en 5t eða meira. Eftir námskeið þurfa þátttakendur að standast próf.
Þetta er kennt í persónu og á vinnustað kaupenda. Hafðu samband til þess að bóka tíma.
-
Farið yfir brúkrana og uppbyggingu hans
-
Hvernig á að tryggja öryggi
-
Farið yfir ásláttarbúnað
Fyrir hverja
Fyrir alla sem eiga að nota brúkrana eða hlaupaketti sem geta lyft 5t eða meira.
Verð
24.000 á mann - afsláttur er veittur fyrir hópa.

Áhættumat er kerfisbundin athugun á vinnuaðstæðum til að finna hvort eitthvað í vinnuumhverfinu eða framkvæmd vinnunnar geti valdið heilsutjóni. Markmiðið er að koma auga á hættur og meta hugsanleg áhrif þeirra á öryggi og vellíðan starfsfólks.
Markmið með námskeiðinu er m.a. að nemandi
-
Viti hvað áhættumat er, hvernig það er notað og hvernig það er notað vel
-
Skilji mikilvægi áhættumats í góðri öryggisstjórnun
-
Geti metið hvaða hættur eru til staðar, hverjar eru afleiðingar þeirra og geti stýrt þeim
Fyrir hverja?
Áhættumat þarf að gera fyrir alla atvinnustarfsemi, óháð starfsmannafjölda. Þetta á við um öll fyrirtæki og stofnanir, þar með talið bændur og einyrkja. Atvinnurekandi ber ábyrgð á gerð áhættumatsins, en öryggisnefndir og starfsmenn eiga einnig að taka þátt í ferlinu.
Hættuleg efni
Mannleg hegðun og öryggismál
Vinna í hæð



Þetta námskeið fjallar um grundvallaratriði í meðferð hættulegra efna og er ætlað að efla öryggi á vinnustöðum þar sem slík efni eru notuð.
Innihald námskeiðs er m.a.:
-
Hvað telst hættulegt efni og helstu áhættur tengdar notkun þess
-
Hættumerki og flokkun samkvæmt CLP-reglugerð
-
Rétt vinnubrögð við meðhöndlun hættulegra efna
-
Áhættumat og verkferlar tengdir efnavinnu
-
Notkun vinnulýsinga og öryggisblaða (SDS)
-
Rétt geymsla efna til að koma í veg fyrir óhöpp og mengun
-
Varnir gegn alvarlegum slysum af völdum efna
Markmið námskeiðs:
-
Að auka skilning þátttakenda á hættum sem tengjast hættulegum efnum
-
Að kenna rétta og örugga meðferð, geymslu og skráningu efna
-
Að efla varnir fyrirtækja til að koma í veg fyrir óhöpp og alvarleg slys á vinnustað
Fyrir hverja
Námskeiðið hentar öllum starfsfólki sem vinna beint eða óbeint með hættuleg efni, sem og stjórnendum sem bera ábyrgð á öryggismálum.
Í öryggisfræðum er oft sagt að mannleg hegðun sé veikasta vörnin til að koma í veg fyrir slys. Flestir sem hafa unnið í öryggismálum þekkja hversu krefjandi það getur verið að fá fólk til að fylgja einföldum öryggisreglum eins og að nota hjálm, girða af vinnusvæði, fylla út gátlista, framkvæma grunnathuganir o.s.frv.
Í þessum fyrirlestri skoðum við þessa staðhæfingu út frá sálfræðilegu sjónarhorni:
-
Af hverju mannleg hegðun er veikasta vörnin í forvörnum gegn slysum
-
Hvaða þættir - hugrænir, félagslegir og skipulagslegir - hafa áhrif á hegðun starfsmanna
-
Hvernig við getum með markvissum aðgerðum, þjálfun og öflugri öryggismenningu styrkt þessa vörn og þannig bætt öryggi á vinnustöðum.
Fyrir hverja
Fyrir alla sem vilja skilja mannlega hegðun í öryggismálum og efla öryggismenningu á vinnustað.
Vinna í hæð er ein helsta orsök alvarlegra slysa á vinnustöðum. Fall úr hæð getur haft mjög alvarlegar afleiðingar, jafnvel þegar um tiltölulega litla hæð er að ræða.
Flestir sem starfa í framkvæmdum, viðhaldsvinnu eða iðnaði þekkja aðstæður þar sem unnið er á:
-
Vinnupöllum
-
Stigum og tröppum
-
Lyftipöllum og körfum
-
Þökum og öðrum upphækkuðum svæðum
Í slíkum aðstæðum skiptir undirbúningur, réttur búnaður og skýrar verklagsreglur sköpum.
Í þessum fyrirlestri fjöllum við um:
-
Hvað telst vinna í hæð samkvæmt reglum og leiðbeiningum
-
Helstu hættur og algeng orsök fallslysa
-
Kröfur til vinnupalla, stiga og lyftibúnaðar
-
Val og notkun fallvarnarbúnaðar
-
Skipulag vinnu, áhættumat og neyðaráætlanir
Markmiðið er að veita skýra og hagnýta yfirsýn yfir örugga framkvæmd vinnu í hæð og hvernig megi draga úr fallhættu á vinnustað.
Fyrir hverja
Fyrir alla sem vinna í hæð, skipuleggja slíka vinnu eða bera ábyrgð á öryggi þar sem fallhætta er til staðar.